Hilmar Snær Örvarsson varð í dag fyrstur Íslendinga til þess að vinna sigur á heimsbikarmótaröð fatlaðra í alpagreinum, en Hilmar er við keppni í Zagreb þar sem heimsbikarmótið í svigi fer fram.
Hilmar var annar eftir fyrri ferðina í dag á tímanum 1:00,27 mínútum, 1,52 sekúndum á eftir þeim sem var með besta tímann. Í seinni ferðinni var tími Hilmars 1:01,44 mínútur og þegar allir höfðu lokið sér af var ljóst að Hilmar var samanlagt 1,20 sekúndum fljótari en næsti maður og stóð því uppi sem sigurvegari.
Hilmar keppir strax aftur á morgun, en ef flett er fram á 52. mínútu í myndbandinu HÉR má sjá seinni ferð Hilmars í dag.
Þótt Hilmar sé einungis á 19. aldursári hefur hann þegar öðlast reynslu af keppni á stórmóti því hann keppti á Vetrar-Paralympics í Suður-Kóreu í fyrra og var raunar fánaberi Íslands á leikunum. Þar keppti hann einnig í svigi og stórsvigi en Hilmar keppir í flokki aflimaðra.