Systurnar Venus og Serena Willams eru báðar komnar áfram í 3. umferð á opna ástralska meistaramótinu í tennis.
Serena, sem á titil að verja, vann öruggan sigur gegn Eugenie Bouchard frá Kanada í tveimur settum, 6:2 og 6:2, í leik sem stóð yfir í 70 mínútur. Serena, sem er 37 ára gömul, stefnir að því að vinna sinn 24. risatitil á ferlinum. Næsti andstæðingur hennar verður Dayana Yastremska frá Úkraínu.
Hin 38 ára gamla Venus hafði betur gegn Alize Cornet frá Frakklandi. Venus vann fyrsta settið 6:3 en Cornet jafnaði metin með því að vinna annað settið 6:4. Venus vann svo öruggan sigur í oddasettinu 6:0 og mætir Simina Halep í 3. umferðinni.