Serena vann þá bestu

Serena Williams fagnar í morgun.
Serena Williams fagnar í morgun. AFP

Serena Williams tryggði sér í morgun sæti í átta manna úrslitum í einliðaleik Opna ástralska meistaramótsins í tennis. Hún vann þá efstu konu heimslistans, Simonu Halep.

Serena vann viðureignina 61:, 4:6 og 6:4, og komst um leið í átta manna úrslit í 12. sinn á þessu móti. Hún hefur þegar unnið það sjö sinnum og standi hún uppi sem sigurvegari í ár verður það hennar 24. risatitill á ferlinum. Það myndi jafna árangur Margaret Court yfir flesta risatitla í sögunni.

Serena mun mæta hinni tékknesku Karolina Pliskova í átta manna úrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert