Borgarstjóri tók fyrstu skóflustungu Framara

Dagur B. Eggertsson og ungir Framarar taka fyrstu skóflustunguna.
Dagur B. Eggertsson og ungir Framarar taka fyrstu skóflustunguna. Ljósmynd/Fram

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, og iðkendur í yngri flokkum hjá Fram tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri íþróttamiðstöð félagsins í Úlfarsárdal. Framkvæmdir hefjast strax og verklok eru áætluð 2022. 

Á vefsíðu Fram má sjá upplýsingar um mannvirkið, sem verður hið glæsilegasta. 

Fjölnota íþróttahús, áhorfendastúka fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasalir, félags- og þjónustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrými ásamt samkomusal og fundaraðstöðu eru hlutar af íþróttamiðstöðinni. Hún verður 7.300 m2 á þremur hæðum með aðalinngang við sameiginlegt hverfistorg  við Úlfarsbraut.

Íþróttamiðstöðin mun hýsa fullbúna handboltahöll með keppnisvelli og áhorfendapöllum fyrir allt að 1.300 manns. Vellinum má skipta upp í tvo handboltavelli í fullri stærð. Í húsinu verða þar að auki lyftingasalur, fjölnota æfingarsalur og bardagasalur. Búningsklefar eru 15 talsins, þar af sérklefi fyrir hreyfihamlaða iðkendur.

Mikið hefur verið lagt upp úr félagsrýmum íþróttahússins og verður þar að finna fjölbreytta sali að stærð og gerð, á öllum hæðum hússins. Þar verður stór samkomusalur ásamt framreiðslueldhúsi og þaksvölum, tveir fjölnotasalir með útsýni yfir keppnisvelli og fyrirlestrarsalur. Aðalaðkomurýmið er skemmtilegt með deildarverslun og veitingasölu, og þaðan er gengt út á svalagang sem umlykur handboltavöllinn. Innangengt verður milli íþróttahúss og menningarmiðstöðvar á 1. hæð byggingar.

Nýr knattspyrnuvöllur verður gervigrasvöllur, með stúku sem rýmir 1.600 áhorfendur. Góðir grasæfingavellir verða einnig á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert