Besti tími ársins hjá Bergrúnu

Bergrún á fleygiferð í Dubai.
Bergrún á fleygiferð í Dubai. Ljósmynd/Jón Björn

Frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir náði í morgun besta tíma sínum á árinu þegar hún keppti í undanrásum í 100 metra hlaupi á heimsmeistaramóti fatlaðra sem nú stendur yfir í Dubai.

Bergrún kom í mark á tímanum 14,97 sekúndum og hafnaði í 14. sæti af 16 keppendum í undanrásum.

Rétt eins og í langstökkskeppninni hjá Bergrúnu mætti hin kínverska Wen Xiaoyan til leiks og sló mótsmet strax í undanrásum þegar hún hljóp á tímanum 13,22 sekúndum.

Bergrún var skráð til leiks með tímann 14,73 sekúndur en þeim tíma náði hún á Evrópumeistaramótinu í Berlín sumarið 2018. Eftir undanrásirnar í dag hefur Bergrún lokið við tvær af þremur greinum sínum en á morgun heldur hún svo í undanrásir í 200 metra hlaupi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert