Newcastle skellti Chelsea, 1:0, á St. James Park í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld með sigurmarki seint í uppbótartíma.
Chelsea mistókst að styrkja stöðu sína í fjórða sætinu en Newcastle hefur þótt erfitt heim að sækja. Isaac Hayden skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu uppbótartímans við ærinn fögnuð áhorfenda.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.