Eva nálægt sínu besta

Eva María Baldursdóttir glaðleit í Laugardalnum í kvöld.
Eva María Baldursdóttir glaðleit í Laugardalnum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eva María Baldursdóttir, efnilegasti hástökkvari Íslands í kvennaflokki, vann öruggan sigur í greininni í 18-19 ára flokki á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í Laugardalshöll í kvöld. 

Eva stökk hæst 1,76 metra, sem er tveimur sentimetrum frá hennar besta árangri í greininni innanhúss. Hún reyndi þrívegis við 1,82 metra án árangurs. 

Katrín Tinna Pétursdóttir varð önnur með 1,57 metra og Elsa Björg Pálsdóttir þriðja með 1,54 metra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert