Vestfirðingar síðastir í undanúrslitin

Grétar Eggertsson formaður BLÍ og Sigurbjörn Árni Arngrímsson draga í …
Grétar Eggertsson formaður BLÍ og Sigurbjörn Árni Arngrímsson draga í bikarkeppninni. Ljósmynd/Kristín

Vestri hreppti í dag fjórða og síðasta sætið í undanúrslitum bikarkeppni karla í blaki, Kjörísbikarsins, með því að sigra Fylki á útivelli, 3:0.

Hrinurnar enduðu 25:17, 25:19 og 25:23 fyrir Vestfirðinga. Fulltrúar Blaksambands Íslands voru á leiknum í Árbænum og að honum loknum var dregið í undanúrslit karla en búið var að draga í kvennaflokki.

Þar drógust Vestfirðingarnir gegn Hamarsmönnum, sem eru efstir í úrvalsdeild karla, Mizuno-deildinni.

Undanúrslit kvenna fara fram í Digranesi næstkomandi föstudag og eru leikirnir eftirfarandi:

Kl. 17:00: KA - Völsungur
Kl. 20:00: HK - Afturelding

Undanúrslit karla fara fram í Digranesi á laugardag og eru leikirnir eftirfarandi:

Kl. 13:00: Hamar - Vestri
Kl. 20:00: HK - Afturelding

Úrslitaleikirnir fara svo fram á sunnudag þar sem konurnar leika kl. 13:00 og karlarnir kl. 15:30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert