Hann ætti að láta bólusetja sig

Novak Djokovic á heimleiðinni frá Ástralíu í gær.
Novak Djokovic á heimleiðinni frá Ástralíu í gær. AFP

Novak Djokovic ætti að láta bólusetja sig ef hann ætlar sér að keppa eða dveljast á Spáni, segir talskona spænsku ríkisstjórnarinnar.

Isabel Rodriguez sagði þetta á fréttamannafundi í Madríd í dag þegar hún var spurð hvort besti tennismaður heims fengi að keppa á Spáni í kjölfar þess að honum var vísað frá Ástralíu þar sem hann er ekki bólusettur fyrir kórónuveirunni.

„Hann þarf að láta bólusetja sig, það væri skynsamlegast," sagði Rodriguez. Djokovic ferðast reglulega á milli Serbíu og Spánar en hann á hús í Marbella. Þar dvaldi hann seint í desember og í byrjun janúar, áður en hann hélt til Ástralíu þar sem hann hugðist keppa á Opna ástralska mótinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert