Ógleymanleg lífsreynsla á Íslandi

Bandaríkjakonan Lindsey Vonn er ein sigursælasta skíðakona heims.
Bandaríkjakonan Lindsey Vonn er ein sigursælasta skíðakona heims. AFP

Lindsey Vonn, ein sigursælasta skíðakona heims, skellti sér í þyrluskíðun á Tröllaskaganum á dögunum.

Vonn, sem er 37 ára gömul, hætti keppni í febrúar árið 2019 eftir þrálát meiðsli en hún keppti í 19 tímabil í heimsbikarnum.

Hún er sigursælasta skíðakona í sögu heimsbikarsins með 82 sigra en samlanda hennar frá Bandaríkjunum, Mikaela Shiffrin, kemur þar á eftir með 74 sigra.

Vonn vann til gullverðlauna í bruni á Ólympíuleikunum í Vancouver árið 2010 og þá hefur hún tvívegis orðið heimsmeistari á ferlinum, í bæði skiptin í Val-d'lsére í Frakklandi árið 2009 í bruni og stórsvigi.

„Ég hef heimsótt mörg fjöll en þetta var ógleymanleg lífsreynsla. Skíðað rétt eftir miðnætti á Íslandi,“ skrifaði Vonn meðal annars í færslu sem hún birti á samfélagsmiðlinum Instagram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert