Húsvíkingar í átta liða úrslitin

Leikmaður Völsungs undirbýr smass í leiknum gegn BFH.
Leikmaður Völsungs undirbýr smass í leiknum gegn BFH. Ljósmynd/Berta María Hreinsdóttir

Völsungur frá Húsavík komst í gær í átta liða úrslitin í bikarkeppni karla í blaki, Kjörís-bikarnum, með því að vinna Blakfélag Hafnarfjarðar, 3:0, á Húsavík en bæði liðin leika í 2. deild Íslandsmótsins.

Völsungur fær úrvalsdeildarlið Vestra í heimsókn í átta liða úrslitunum 25. febrúar.

Völsungur vann hrinurnar 25:21, 25:23 og 25:17. Stigahæstir í liði Völsungs voru Aron Bjarki Kristjánsson með 14 stig og Sigurður Helgi Brynjúlfsson með tíu stig og í liði Blakfélags Hafnarfjarðar var Tómas Þór Þorsteinsson með níu stig. 

Lið Völsungs eftir sigurinn.
Lið Völsungs eftir sigurinn. Ljósmynd/Berta María Hreinsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert