Gunnar fékk tugi milljóna fyrir bardagann

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson. Ljósmynd/Snorri Björns

UFC-bardagakappinn Gunnar Nelson fékk ágætlega borgað fyrir bardaga sinn um helgina í O2 Arena í Lundúnum.

Gunnar lagði Bandaríkjamanninn Bry­an Barb­erena að velli strax í fyrstu lotu en Gunnar átti frammistöðu kvöldsins á bardagakvöldinu sem skilaði honum nokkrum aukakrónum í kassann.

Vefmiðillinn TotalSport greinir frá því að Gunnar hafi fengið greidda í kringum 465.000 bandaríkjadali fyrir bardagakvöldið en inn í þeirri upphæð eru allar greiðslur, bónusar og styrktarsamningar.

Það gerir rúmlega 65 milljónir íslenskra króna en Gunnar hefur nú unnið tvo bardaga í röð í UFC, gegn Barberena um helgina og Takashi Sato frá Jap­an fyrir ári.

Upp­fært klukk­an 12:55

Har­ald­ur Nel­son, faðir bar­dagakapp­ans Gunn­ars Nel­son og umboðsmaður hans, seg­ir að þær fjár­hæðir sem Gunn­ar er í erlendum miðlum sagður hafa þénað fyr­ir bar­daga sinn við Bry­an Barb­erena á laug­ar­dag séu al­gjör­lega úr lausu lofti gripn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert