Thelma og Valgarð vörðu titlana

Sigurvegararnir Thelma Aðalsteinsdóttir og Valgarð Reinhardsson.
Sigurvegararnir Thelma Aðalsteinsdóttir og Valgarð Reinhardsson. Ljósmynd/Þórey Kristinsdóttir

Thelma Aðalsteinsdóttir og Valgarð Reinhardsson, bæði úr Gerplu, vörðu Íslandsmeistaratitla sína frá því í fyrra í áhaldafimleikum í dag. 

Valgarð vann öruggan sigur og sinn sjöunda Íslandsmeistaratitil. Valgarð sigraði með 77.065 stig. Liðsfélagi hans Martin Bjarni Guðmundsson nældi sér í silfur með 74.565 stig. Rétt á eftir honum í þriðja sæti var það Atli Snær Valgeirsson, einnig úr Gerplu, með 74.231 stig.

Valgarð með sína bikara.
Valgarð með sína bikara. mbl.is/Óttar Geirsson

Baráttan í kvennaflokki var hörð en að lokum var það eins og fyrr segir Thelma sem bar sigur úr býtum, með 48.400 stig. Jafnar í öðru sæti voru þær Margrét Lea Kristinsdóttir úr Björk og Hildur Maja Guðmundsdóttir úr Gerplu með 47.550 stig.

Íslandsmeistarar unglinga

Unglingafokkur karla

  • 1. sæti – Lúkas Ari Ragnarsson, Björk – 68.299 stig
  • 2. sæti – Stefán Máni Kárason, Björk – 64.065 stig
  • 3. sæti – Ari Freyr Kristinsson, Björk – 62.164 stig

Unglingaflokkur kvenna

  • 1. sæti – Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Gerplu – 47.950 stig
  • 2. sæti – Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Gerplu – 44.950 stig
  • 3. sæti – Rakel Sara Pétursdóttir, Gerplu – 44.650 stig

 Hér má sjá öll úrslit dagsins

Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum, þar sem fimm stigahæstu keppendur á hverju áhaldi berjast um Íslandsmeistaratitilinn á áhaldinu.

Thelma fagnar sínum bikurum.
Thelma fagnar sínum bikurum. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert