Ekkert fćr stöđvađ Tiger Woods
Tiger Woods átti ekki í vandrćđum međ Stewart Cink í úrslitum heimsmótsins í holukeppni og er ţetta 15. sigur hans á heimsmóti í golfi. Woods hefur nú titil ađ verja á öllum ţremur heimsmótunum henn sigrađi einnig á Bridgestone meistaramótinu og CA meistaramótinu á Doral vellinum. Úrslitaleikurinn var langt frá ţví ađ vera spennandi ţví Woods var međ mikla yfirburđi. Woods fékk 14 fugla á 29 holum og var hann međ 8 vinninga ţegar 7 holur voru eftir.
Ţetta er mesti munur í úrslitaleik mótsins sem fór fyrst fram fyrir 10 árum. Woods hefur nú sigrađ á síđustu fjórum mótum sem hann hefur tekiđ ţátt í á PGA-mótaröđinni og ţetta var fimmta mótiđ í röđ sem hann vinnur en Woods sigrađi á Dubai meistaramótinu á Evrópumótaröđinni.
Woods hefur nú sigrađ á 63 mótum á PGA-mótaröđinni og fór hann upp fyrir Arnold Palmer yfir sigursćlustu kylfinga frá upphafi á PGA-mótaröđinni. Woods er núna í fjórđa sćti en Ben Hogan er í sćtinu fyrir ofan en hann sigrađi á 64 PGA-mótum á sínum tíma.
„Ţađ er heiđur ađ vera í hópi ţessara heiđursmanna sem skipa efstu sćti á listanum yfir flesta sigra á PGA-mótaröđinni,“ sagđi Woods m.a. eftir sigurinn í Arizona.
Til baka









