[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Golf

Spurt er

Nýtt á mbl.is

 

Myndasyrpur

 
Golfari dagsins

Kylfingur dagsins

Allir
Breyta skráningu
N1 deild karla Akureyri-FH Iceland Express deild karla Snæfell-KR
Bandaríkjamaðurinn Corey Pavin fagnar með kylfusveini sínum.

Bandaríkjamaðurinn Corey Pavin fagnar með kylfusveini sínum. AP

Íþróttir | mbl.is | 4.2.2010 | 15:50

Pavin mætir til leiks með fjóra aðstoðarmenn

Corey Pavin mætir með fjölmennt lið aðstoðarmanna þegar bandaríska liðið leikur gegn því evrópska í Ryderkeppninni á Celtic Manor í Wales í september. Tom Lehman, Jeff Sluman, Davis Love og Paul Goydos verða aðstoðarmenn Pavin.

Lehman var fyrirliði bandaríska liðsins á K-Club fyrir fjórum árum en þá var Pavin einn af aðstoðarmönnum Lehman.

Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópuliðsins, ætlar einnig að velja fjóra aðstoðarmenn en hann hefur ekki tekið endanlega ákvörðun hverjir þeir verða. Paul McGinley frá Írlandi og Daninn Thomas Björn hafa verið nefndir til sögunnar líkt og Joze Maria Olazabal frá Spáni.

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka