Kristján og Aron á einu undir pari

Kristján Þór Einarsson fer vel af stað á Íslandsmótinu.
Kristján Þór Einarsson fer vel af stað á Íslandsmótinu. mbl.is/Árni Sæberg

Kristján Þór Einarsson úr GKJ og Aron Snær Júlíusson úr GKG hafa farið best af stað af þeim kylfingum í karlaflokki sem hafa lokið sex til níu holum á fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins í golfi sem hófs í Leirdal í morgun.

Kristján og Aron eru báðir á einu höggi undir pari vallarins eftir fyrstu 6 holurnar. Á Pari eru síðan Haraldur Franklín Magnús úr GR, Þórður Rafn Gissurarson úr GR, Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG, Gísli Sveinbergsson úr GK, Oddur Óli Jónasson úr NK og Rúnar Arnórsson úr GK. Rúnar hefur lokið 9 holum en hinir sex.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert