Birgir Leifur samtals á fimm undir pari

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson er á fimm höggum undir pari eftir tvo hringi á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina en mótið fer fram á Ribagolf í Lissabon í Portúgal.

Birgir Leifur lék í dag á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari og þegar þetta er skrifað er hann í 2.-3. sæti en margir kylfingar eiga þó eftir að ljúka leik í dag.

Alls taka 94 keppendur þátt í mótinu og komast um 20 efstu áfram á 2. stig úrtökumótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert