Glæsileg tilþrif sáust á fyrsta móti ársins 2015 á Íslandsbankamótaröð barna – og unglinga sem fram fór á Garðavelli á Akranesi um helgina.
Að venju var keppt í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum en á annað hundrað keppendur sóttu Golfklúbbinn Leyni heim. Aðstæður voru nokkuð krefjandi en þrátt fyrir þétta golu sýndu kylfingarnir fín tilþrif og náðu að skila inn góðu skori.
Úrslit urðu eftirfarandi en keppendur voru ánægðir með Garðavöll sem kemur vel undan vetri og lofar góðu fyrir hápunkt keppnistímabilsins 2015 – en Íslandsmótið í golfi fer fram á Garðavelli í júlí í tilefni 50 ára afmælis Leynis.
Drengir:
14 ára og yngri (36 holur):
15 – 16 ára (36 holur):
17 – 18 ára (54 holur):
Stúlkur:
17 – 18 ára (54 holur):
15 – 16 ára (36 holur):
14 ára og yngri (36 holur):
Mótin á Íslandsbankamótaröðinni sumarið 2015:
23.-24. maí: Garðavöllur, Akranesi (1)
5.-7. júní: Strandarvöllur, Hellu (2) – Íslandsmótið í holukeppni.
20.-21. júní: Húsatóftavöllur, Grindavík (3)
17.-19. júlí: Grafarholtsvöllur, Reykjavík (4) – Íslandsmótið í höggleik.
22.-23. ágúst: Hamarsvöllur, Borgarnesi (5)
5.-6. september: Hvaleyrarvöllur, Hafnarfirði (6)