Tiger dróst aftur úr

Tiger Woods í basli á þriðja hringnum í gær.
Tiger Woods í basli á þriðja hringnum í gær. AFP

Tiger Woods, áður besti kylfingur heims, náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun á Greenbrier Classic golfmótinu í Vestur-Virgíníu, á bandarísku PGA-mótaröðinni, á þriðja hringnum sem lauk seint í gærkvöld.

Woods lék á 71 höggi og er nú sjö höggum á eftir fyrstu fjórum mönnum fyrir lokahringinn í dag.

Jason Bohn frá Bandaríkjunum lék sinn besta hring á ferlinum og lék á 61 höggi en hann, Sean O'Hair, Bryce Molder og SJ Park frá Suður-Kóreu eru jafnir og efstir eftir þrjá daga en þeir hafa leikið á 11 höggum undir pari samanlagt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert