Frábær frammistaða hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/golf.is

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni hófu leik í gær á úrtökumóti fyrir LPGA-atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum.

Ólafía, sem er Íslandsmeistari í golfi, lék frábært golf í gær og kom inn á -4 eða 68 höggum (32-36). Hún er í 10.-13. sæti af alls 350 kylfingum. Valdís Þóra lék ekki vel í gær eða á 81 höggi (+9) (42-39) og er hún í 309. sæti. Þær léku báðar á Dinah-vellinum en keppt er á þremur keppnisvöllum á þessu móti. Þetta kemur fram á golf.is

Mótaröðin er sú sterkasta í heimi í kvennaflokki og eru um 350 keppendur mættir til leiks. Keppt er á þremur keppnisvöllum og komast 130 efstu í gegnum niðurskurðinn eftir þrjá keppnishringi. Alls komast 90 efstu úr þessu móti inn á 2. stig úrtökumótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert