Áhorfandinn fór illa með atvinnumennina - myndskeið

Justin Rose og Henrik Stenson léku saman í dag og …
Justin Rose og Henrik Stenson léku saman í dag og var einnig „pakkað saman“. AFP

David Johnson, bandarískur golfáhugamaður, fór illa með tvo af allra fremstu kylfingum í heimi, Englendinginn Justin Rose og Svíann Henrik Stenson á lokaæfingadegi Ryder-bikarsins.

Johnson þessi hrópaði í átt að Rose: Þú munt aldrei setja þetta niður!

Stenson, sem vann opna breska meistaramótið í sumar, brást skemmtilega við og bað Johnson þennan vinsamlegast um að setja þetta pútt niður sjálfur. Rose lagði enn fremur 100 dali undir færi svo að Johnson gæti sett púttið niður.

Auðvitað setti kappinn púttið niður en myndskeiðið skemmtilega má sjá hér að neðan eða með því að smella hér á vefsíðu NBC. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert