Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, er í sjötta sæti að loknum tveimur hringjum á 1. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina sem fram fer í Marokkó.
Valdís Þóra, sem var í 17.-20. sæti eftir fyrsta hring, spilaði samtals á 70 höggum í dag og bætti sig um sex högg á milli hringja. Hún er samtals á tveimur höggum yfir pari.
Alls komast á bilinu 27-28 kylfingar áfram af fyrsta stigi yfir á lokaúrtökumótið sem einnig fer fram í Marokkó, 17.-21. desember.