Ólafía fallin úr leik

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á KIA Classic-mót­inu í LPGA-mótaröðinni í golfi. Þetta varð ljóst eftir að allir kylfingar mótins kláruðu annan hringinn. Ólafía spilaði hringina tvo á þremur höggum yfir pari vallarins. 

Ólafía hefur því ekki komist í gegnum niðurskurðinn á síðustu tveimur mótum sínum, eftir að hafa náð þeim áfanga á fyrstu tveimur mótum sínum í mótaröðinni. Hún var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 

Ólafía þarf kraftaverk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert