Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, lék lokahringinn á Estrella Damm Mediterranean-mótinu, sem er hluti af Evrópumótaröðinni og fer fram í Sitges á Spáni, á tveimur höggum yfir pari vallarins.
Valdís Þóra byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á þremur höggum undir pari vallarins. Valdís Þóra lék svo annan hringinn á einu höggi yfir pari vallarins og þriðja hringinn á tveimur höggum yfir pari vallarins.
Valdís Þóra lék því hringina fjóra samtals á tveimur höggum yfir pari vallarins og er í 51. - 58. sæti mótsins eins og sakir standa.