Ólafía næst í eldlínunni í Texas

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/Tristan Jones

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur keppni á fimmtudaginn á Volunteers of America Texas Shootout mótinu sem haldið verður í Texas í Bandaríkjunum en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Þetta verður sjötta mót Ólafíu á LPGA-mótaröðinni. Hún komst í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum en á síðustu þremur mótunum hefur henni ekki tekist það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert