Valdís Þóra enn í harðri toppbaráttu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET/Tristan Jones

Valdís Þóra Jónsdóttir lék annan hring sinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarins á Foxconn Czech Ladies-mót­inu í LET Access-mótaröðinni, næst­sterk­ustu mótaröð Evr­ópu í golfi í dag. 

Kylfingurinn fékk fjóra fugla, þrjá skolla og ellefu pör á holunum 18 í dag. Valdís lék á 68 höggum, eða þremur höggum undir pari vallarins, í gær og er hún samtals á fjórum höggum undir pari. Valdís er í fjórða sæti, en þrír kylfingar eru eftir og jafnir á fimm höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert