Ævintýralegt sigurhögg Spieth

Jordan Spieth og Michael Greller, kylfuberi hans, fögnuðu ógurlega eftir …
Jordan Spieth og Michael Greller, kylfuberi hans, fögnuðu ógurlega eftir höggið ótrúlega. AFP

Jordan Spieth tryggði sér sigur á Travelers-meistaramótinu í golfi með ævintýralegum hætti í bráðabana í Connecticut í kvöld.

Spieth og Daniel Berger voru jafnir eftir fjóra hringi á -12 höggum undir pari, eftir að Berger hafði fengið þrjá fugla á síðustu sex brautunum. Því tók við bráðabani þar sem Spieth setti boltann ofan í sandgryfju Hann náði hins vegar að tryggja sér sigur með því að slá boltann úr sandgryfjunni og beint ofan í holuna, við gríðarlegan fögnuð viðstaddra. Sjón er sögu ríkari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert