Hákon Örn Magnússon, Vikar Jónasson, Helgi Snær Björgvinsson og Axel Bóasson eru efstir og jafnir á þremur höggum undir pari eftir fyrsta hring í Hvaleyrarbikarnum á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Þeir léku á 68 höggum í dag.
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Daníel Ísak Steinarsson komu þar á eftir á tveimur höggum undir pari vallarins. Keppnin heldur áfram á morgun en alls eru leiknir þrír hringir á mótinu.
Hákon Örn og Helgi Snær eru báðir fæddir árið 1998 og Vikar Jónasson er fæddur árið 1997 og eru þeir því 18-20 ára gamlir.