Guðrún Brá féll niður í níunda sæti

Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir mbl.is/Golli

Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir átti sinn slakasta hring í dag á EM einstaklinga í Sviss. Hún lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari vallarins og féll hún niður úr öðru sæti niður í það níunda. Hún hefur leikið hringina þrjá á 214 höggum eða tveimur höggum undir pari. 

Guðrún fór illa af stað í dag og fékk þrjá skolla á fyrstu þremur holunum. Hún fékk svo annan skolla á níundu holu og var hún því fjórum höggum yfir pari vallarins að loknum fyrri níu holunum. Hún rétti úr kútnum á seinni níu holunum og fékk hún þrjá fugla á fyrstu fjórum holum þeirra. 

Tveir skollar á síðustu tveimur holum reyndust hins vegar dýrkeyptir og féll hún niður úr þriðja sæti í það níunda. Guðrún leikur fjórða og síðasta hring mótsins á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert