Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er efstur í karlaflokki eftir annan keppnisdag í Securitas-mótinu í golfi. Mótið er síðasta mót Eimskipsmótaraðarinnar á tímabilinu og fer það fram á Grafarholtsvelli.
Haraldur lék á þremur höggum undir pari og er hann á samtals átta höggum undir pari fyrir lokadaginn á morgun. Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Aron Snær Júlíusson eru jafnir í 2.-3. sæti á fimm höggum undir pari.
Í kvennaflokki er Gunnhildur Kristjánsdóttir efst á átta höggum yfir pari. Hún er einu höggi á undan Sögu Traustadóttur sem er í öðru sæti.
Lokadagur mótsins fer fram á morgun.