Valdís Þóra hálfnuð á einu yfir

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Golli

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, er þessa stundina í eldlínunni á Costa del Sol Open-mótinu í Andalúsíu á Spáni sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Hún er hálfnuð með fyrsta hringinn.

Valdís byrjaði á seinni níu holunum í dag og fékk tvo skolla á fyrstu fjórum holunum. Hún fylgdi því hins vegar með því að fá tvo fugla á næstu þremur holum sem kom henni á parið á ný, en á 18. brautinni fékk hún þriðja skollann og er því samtals á einu höggi yfir pari fyrir seinni hluta hringsins.

Flestir kylfingar eiga eftir að ljúka leik en sem stendur er heimakonan Natalia Escuriola efst á sjö höggum undir pari. Skorið verður niður eftir fyrstu tvo hringina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert