Valdís Þóra er úr leik

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, er úr leik á Costa del Sol Open-mótinu sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. Keppt er í Andalúsíu á Spáni og Valdís komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Valdís Þóra átti erfiðan fyrsta hring í gær og þurfti að spila afar vel í dag til þess að eiga möguleika á því að komast áfram. Hún fékk alls fimm fugla í dag en þrjá skolla og spilaði hringinn því samtals á tveimur höggum undir pari.

Eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á sex höggum yfir pari var hún því samtals á fjórum höggum yfir pari og það dugði ekki til þess að komast í gegnum niðurskurðinn sem var miðaður við parið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert