Tiger Woods, einn besti kylfingur sögunnar, hefur gengið grænt ljós frá læknum til að mega fara að slá af fullum krafti á ný eftir þrálát meiðsli.
Woods er nú 41 árs gamall en hefur verið að glíma við mikil meiðsli síðustu ár og hefur ekki sýnt gamla takta. Hann hefur farið í margar aðgerðir á baki í leit að bót meina sinna. Hann hefur unnið 14 risamót á ferlinum.
Woods fór síðast í aðgerð í apríl en hefur síðan þá frekar komist í fréttirnar vegna misgjörða sinna eftir að hafa verið tekinn vegna aksturs undir áhrifum lyfja.