Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði í dag lokahringinn á Tour Championship, lokamóti LPGA-mótaraðarinnar í golfi, sem fram fer í Flórída. Ólafía spilaði hringinn á parinu og kom í hús í 59. sæti.
Ólafía byrjaði á seinni níu holunum í dag og fékk tvo skolla og einn fugl, en á síðari hluta hringsins fékk hún tvo fugla og einn skolla og var því samtals á parinu. Hún spilaði því hringina fjóra samanlagt á fjórum höggum yfir pari og kom í hús í 59. sæti þótt enn eigi nokkrir kylfingar eftir að ljúka leik.
Ólafía spilaði fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari, þann næsta á tveimur höggum yfir en þann þriðja í gær á fjórum höggum yfir pari. Hún náði því ekki að laga stöðu sína að ráði á lokahringnum, en þess ber að geta að þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kylfingur fær keppnisrétt á lokamóti stærstu mótaraðar heims.
Fylgst var með gangi mála á hringnum hjá Ólafíu í beinni textalýsingu hér á mbl.is.