Birgir Leifur mætir mörgum af þeim bestu

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, verður á meðal keppenda á PGA-meistaramótinu í Ástralíu. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og fer það fram dagana 30. nóvember – 3. desember og er leikið á Royal Pines-vellinum. Frá þessu er greint á golf.is.

Mótið er sameiginlegt verkefni hjá Evrópumótaröðinni og PGA-atvinnumótaröðinni í Ástralíu. PGA-meistaramótið í Ástralíu á sér langa sögu sem nær allt aftur til ársins 1905 þegar fyrst var keppt um titilinn.

Á meðal keppenda eru margir af bestu kylfingum heims og má þar nefna Adam Scott frá Ástralíu og Sergio Garcia frá Spáni.

Birgir Leifur gerir ráð fyrir að komst inn á 10-15 mót í Evrópumótaröðinni samhliða því að vera með keppnisrétt á öllum mótum næsta tímabils í Áskorendamótaröðinni. Sigur hans á Áskorendamóti í ágúst á þessu ári styrkir stöðu hans varðandi þátttöku í Evrópumótaröðinni sem er sú sterkasta í Evrópu.

Birgir Leifur lék síðast í Evrópumótaröðinni árið 2011 en þá fékk hann tækifæri á einu móti. Alls hefur hann leikið á 60 mótum í Evrópumótaröðinni. Hann var með keppnisrétt í Evrópumótaröðinni 2007-2009 og á þeim tíma lék hann á samtals 43 mótum í mótaröð þeirra bestu í Evrópu. Birgir Leifur er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur náð að tryggja sér keppnisrétt í Evrópumótaröðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert