Birgir Leifur Hafþórsson var að ljúka öðrum hringnum á Barclays-mótinu í golfi í Kenía en þetta er fyrsta mótið í Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili.
Birgir Leifur lék hringinn á 71 höggi í dag eða á pari vallarins og er því samanlagt á tveimur höggum yfir pari. Hann fékk þrjá fugla, fjóra skolla og lék 11 holur á pari.
Þessi frammistaða Birgis Leifs dugar honum ekki til að komast í gegnum niðurskurðinn en hann er miðaður við parið. Hann er því úr leik sem og Axel Bóasson sem fyrr í dag lék á einu höggi yfir pari líkt og í gær.