Ein hola fór illa með Birgi Leif

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari á þriðja hring sínum á BMW International Open-mótinu sem fram fer í Þýskalandi á Evrópumótaröðinni. 

Birgir lék heilt yfir nokkuð vel en 9. holan skemmdi fyrir. Hana lék Birgir á 8 höggum, eða fjórum höggum yfir pari.  Birgir Leifur er samtals á sex höggum yfir pari eftir fyrstu þrjá hringi mótsins og er fyrir vikið jafn í 69. sæti.

Efstu kylfingar mótsins, þeir Lucas Bjerregaard, Max Kieffer og Scott Hend eru á 5 höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert