Ágæt byrjun hjá Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur og íþróttamaður ársins 2017, fór ágætlega af stað á Indy Women in Tech-mótinu í LPGA-mótaröðinni í dag og lék fyrsta hringinn á 71 höggi, eða einu höggi undir pari. 

Ólafía byrjaði vel og var komin tvö högg undir parið á fimmtu holu. Hún fékk hins vegar skolla á áttundu og tíundu holu og var á pari fram að sextándu holu, þar sem hún nældi í annan fugl og sá til þess að hún væri undir parinu. 

Annar hringur mótsins fer fram á morgun og verður Ólafía í harðri baráttu um að komast í gegnum niðurskurðinn, með svipaðri frammistöðu og í dag. 

Ólafía í Indianapolis - 1. hringur opna loka
kl. 21:13 Textalýsing 18 - PAR Ólafía fær par á átjándu og síðustu holunni og líkur því leik í dag á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Staðan: 79.-99. sæti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert