Erfiður hringur hjá Guðrúnu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, lék þriðja hringinn á Boss­ey Ladies Champ­i­ons­hip-mót­inu á 75 höggum, fjórum höggum yfir pari. Mótið er í LET-Acess mótaröðinni, næst­sterk­ustu mótaröð Evr­ópu. 

Guðrún lék fyrri tvo hringina á 70 höggum, einu höggi undir pari og er hún því á samanlagt tveimur höggum yfir pari eftir þrjá hringi. Hún er í 27. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum fyrir fjórða og síðasta hringinn á morgun. 

Berglind Björnsdóttir lék einnig á mótinu en hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert