Valdís keppir á lokamóti LET-mótaraðarinnar

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Skagakonan Valdís Þóra Jónsdóttir tekur þátt í lokamóti LET-mótaraðarinnar í golfi sem hefst á fimmtudaginn. Mótið heitir Andalucia Costa del Sol Open Espana og verður leikið á La Quinta-vellinum á Spáni.

Valdís Þóra er í 39. sæti á stigalista LET-Evrópumótaraðarinnar. Hún er örugg með keppnisrétt á næsta tímabili á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.

Mótið á Spáni er 12. mótið á tímabilinu hjá Valdís Þóru. Besti árangur hennar er 3. sætið á móti sem fram fór í Ástralíu snemma á þessu ári. Valdís hefur tvívegis endað í 3. sæti í LET- Evrópumótaröðinni – og er það besti árangur sem íslenskur atvinnukylfingur hefur náð á atvinnumóti í efsta styrkleikaflokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert