Tiger Woods í 14. sæti

Vinsældir Tigers Woods eru enn til staðar.
Vinsældir Tigers Woods eru enn til staðar. AFP

Þegar árið er bráðum liðið sitja þau Ariya Jutanugarn frá Tælandi  og Brooks Koepka frá Bandaríkjunum í efstu sætum heimslistanna í golfi. 

Staða Asíubúa er frábær hjá honunum en næstu þrjár koma frá Suður-Kóreu. Fara þarf niður í 5. sæti listans til að finna bandarískan kylfing og er það Lexi Thompson sem er byrjuð að keppa á ný eftir að hafa tekið sér pásu. 

Justin Rose frá Englandi kemur skammt á eftir Koepka. Tiger Woods er í 14. sæti og hefur klifrað ævintýralega upp listann á þessu ári. 

Ariya Jutanugarn með verðlaun sín eftir að hún var valin …
Ariya Jutanugarn með verðlaun sín eftir að hún var valin kylfingur ársins á LPGA. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert