Valdís og Haraldur kylfingar ársins

Valdís Þóra og Haraldur Franklín.
Valdís Þóra og Haraldur Franklín. Ljósmynd/GSÍ

Golfsamband Íslands tilkynnti í dag að þau Valdís Þóra Jónsdóttir og Haraldur Franklín Magnús hefðu verið valin kylfingar ársins. 

Valdís er í Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og leikur á Evrópumótaröðinni. Haraldur er í Golfklúbbi Reykjavíkur og leikur á Nordic-mótaröðinni.

Þau eru bæði atvinnumenn í íþróttinni og unnu sér bæði keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu sem mótin voru bæði haldin í Skotlandi í sumar. 

Valdís og Haraldur urðu bæði fyrir valinu hjá GSÍ í annað sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert