Haraldur byrjar vel í Noregi

Haraldur Franklín Magnús.
Haraldur Franklín Magnús. AFP

Fyrsti hringurinn á Borre Open-mótinu í Nordic Golf-mótaröðinni var leikinn í Noregi í dag. Tveir íslenskir kylfingar eru á meðal keppenda, en það eru þeir Haraldur Franklín Magnús og Hákon Harðarson. 

Haraldur lék vel á fyrsta hring eða á 71 höggi, tveimur höggum undir pari. Hann er í 19. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum, sex höggum á eftir Jørgen Lie Viken frá Noregi sem er í efsta sæti. 

Hákon náði sér hins vegar ekki á strik og lék á 16 höggum yfir pari. Hann fékk fjóra þrefalda skolla, einn tvöfaldan skolla, þrjá skolla og tvo fugla. Hann er á meðal neðstu kylfinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert