Guðrún Brá Björgvinsdóttir er á meðal efstu kylfinga eftir fjórða og næstsíðasta hringinn á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi í dag. Guðrún lék hringinn á pari í dag, 73, höggum, og er áfram í baráttunni um að komast inn í sjálfa Evrópumótaröðina.
Hún fékk skolla á níundu og 17. holu en fugl á sjöundu og 13. holu og er nú á samtals einu höggi yfir pari eftir hringina fjóra. Amy Boulden frá Wales er með forystuna en hún er sem stendur á fimm höggum undir pari. Kylfingarnir í 15.-19. sæti eru á þremur höggum yfir pari og Guðrún er því í vænlegri stöðu fyrir lokadaginn.
Guðrún Brá er í 11.-14. sæti af 120 keppendum eftir fjóra daga af fimm en fimmtán efstu kylfingarnir komast í Evrópumótaröðina 2020. Mótið heldur áfram á La Manga á Spáni með lokadeginum á morgun.