Guðjón: „Spiluðum eins og kjánar“

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. Ómar Óskarsson

„Við vorum okkur til skammar og verðum svo sannarlega að fara í nafnlaskoðun eftir þennan leik og athuga okkar gang áður en kemur að næsta leik,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðsmaður í handknattleik eftir 24:19-tapleik Íslands gegn Svíum á Evrópumeistaramótinu í Noregi. 

„Við spiluðum eins og kjánar og það er engu líkara en allir leikmenn, og þá á ég við allir, hafi verið á róandi. Eftir svona leik verður hver og einn að líta í eigin barm," bætti hann við.

Nánar í Morgunblaðinu á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert