Ólafur og Guðjón fá ekki að spila með heimsliðinu
Íslensku landsliðsmennirnir í handknattleik, Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson, fá ekki leyfi hjá félagsliði sínu, Rhein-Neckar Löwen, til þess að leika með heimsliðinu gegn landsliði Króatíu í tilefni af 60 ára afmæli króatíska handknattleikssambandsins 2. desember.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Torsten Storm, framkvæmdastjóri RN Löwen, hafa tilkynnt Króötum og Alþjóða handknattleikssambandinu að hann ætli ekki sleppa Guðjóni Val og Ólafi í leikinn. Ástæðan er þess er sú að leikurinn fer ekki fram á alþjóðlegum leikdegi. Því ber Löwen ekki skylda til þess að gefa leikmönnum sínum leyfi til þess að taka þátt í afmælisleiknum.
Guðjón Valur og Ólafur eru einu leikmenn RN Löwen sem voru valdir í heimsliðið að þessu sinni. Ólafur hefur margoft verið valinn til að leika með heimsliðinu en aldrei tekið þátt. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem Guðjón Valur er kallaður inn í liðið.
Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka







Senda inn efni
