Björgvin: Endaði eins og best verður á kosið
,,Ég ákvað bara að láta vaða og það var virkilega sætt að sjá boltann í netinu," sagði Björgvin Hólmgeirsson, leikmaður Hauka, við mbl.is. eftir sigur Hauka á FH í æsispennandi leik í Kaplakrika í kvöld. Björgvin var hetja Haukanna en hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins.
,,Þetta endaði eins og best verður á kosið. Þetta var hörkuleikur enda tvö lið að mætast. FH-ingarnir eru góðir en við höfðum þetta á seiglunni,“ sagði Björgvin, sem skoraði 9 mörk í leiknum og var besti maður Haukanna.
Einar Andri Einarsson þjálfari FH; ,,Ég er að vitaskuld gríðarlega svekktur. Úrslitin hefðu getað endað á hvorn veginn sem var en kannski var um meistaraheppni að ræða hjá Haukum. Þetta eru tvö jöfn lið og þetta var nánast endurtekning frá bikarleiknum en það virðist vera að Haukarnir séu reyndari í því að gera út um leiki í lokin.
Sjá nánar um leikinn og viðtöl í Morgunblaðinu á morgun
Til baka







Senda inn efni
