[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 21.3.2010
Rimaskóli Íslandsmeistari barnaskólasveita 
Skák.is Skáksveit Rimaskóla vann öruggan sigur á Íslandsmóti grunnskólasveita sem fram fór í dag í Vetrargarðinum í Smáralind. Í öðru sæti varð Grunnskóli Vestmannaeyja og í þriðja sæti varð Salaskóli úr Kópavogi. B- og C-sveitir Rimaskóla urðu efstar b- og… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Einar Jónsson þjálfari Fram.

Einar Jónsson þjálfari Fram. mbl.is/hag

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 22:27

Einar: Höfum ekki endalausan tíma

Einar Jónsson þjálfari Framara var að vonum svekktur eftir naumt tap gegn HK í Digranesinu í kvöld, 28:27, þar sem liðin áttust við í N1-deild karla í handknattleik. Hann segir sóknarleik sinna manna hafa verið allt of slakan og að frammistaða dómara leiksins hafi ekki hjálpað til.

„Við erum að sjálfsögðu mjög svekktir. HK spilaði illa í sókninni í fyrri hálfleik en okkur tókst ekki að nýta það því við gerðum svo mikið af klaufalegum mistökum. Við hefðum átt að geta verið fjórum mörkum yfir í hálfleik í stað þess að vera tveimur undir ef við hefðum bara nýtt hraðaupphlaupin,“ sagði Einar í samtali við mbl.is eftir leikinn. Hann var þó ekki eingöngu ósáttur við leik sinna manna heldur einnig dómara leiksins sem dæmdu á tíðum ansi furðulega.

„Seinni hálfleikurinn var í lagi framan af en það var óskiljanlegur munur á því fyrir hvað leikmenn liðanna fengu tveggja mínútna brottvísun. Ég veit ekki hvað þessum mönnum gekk til. Það var bara ekkert samræmi í dómgæslunni. Það afsakar þó ekki öll þessi mistök í sókninni hjá okkur. Það er það sem við þurfum að laga,“ sagði Einar.

Fram er enn á botni deildarinnar með 2 stig en Einar sér nú fram á bjartari tíma eftir að liðið fékk til sín þá Daníel Berg Grétarsson, Guðjón Drengsson og Egil Einarsson í jólafríinu.

„Að sjálfsögðu geri ég það en við höfum ekki endalausan tíma. Við verðum bara að girða okkur í brók og ná okkur í einhver stig. Þetta verður ekkert auðveldara eftir því sem á líður en ég er alltaf bjartsýnn og líður alltaf vel á leikdegi,“ sagði Einar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars