HK lagði Fram með einu marki
HK sigraði Fram, 28:27, í úrvalsdeild karla í handknattleik, N1-deildinni, í Digranesi í kvöld. HK er þá með 13 stig eftir 10 leiki en Fram er áfram á botninum með 2 stig eftir 11 leiki.
Bjarki Már Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir HK og Sverrir Hermannsson 5, og þá varði Sveinbjörn Pétursson 18 skot. Hjá Fram voru Andri Berg Haraldsson og Einar Rafn Eiðsson með 6 mörk hvor. Magnús Erlendsson varði 14 skot, þar af 11 í fyrri hálfleik.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is:
60. Leik lokið með sigri HK, 28:27, eftir mikinn endasprett Framara. Þeir gerðu 4 mörk í röð og minnkuðu muninn í eitt mark, 25:24. HK hélt eftir það eins til tveggja marka forskoti út leikinn og Fram minnkaði muninn í 28:27 þegar 13 sekúndur voru eftir. HK hélt boltanum út leiktímann.
54. HK hefur náð mest sex marka forystu og staðan er 25:20. Sigurður Örn Arnarson kom í mark Fram og byrjaði á að verja tvö skot. Síðan braut hann á skotmanni utarlega í teignum og fékk fyrir það brottvísun, sem var framlengd í 4 mínútur eftir að Sigurður grýtti boltanum í gólfið!
47. HK heldur Frömurum í fjarlægð og staðan er 20:16. Sveinbjörn Pétursson markvörður á þar drjúgan hlut að máli en hann hefur varið níu skot í seinni hálfleik og 16 alls, á meðan Magnús Erlendsson hefur nær ekkert varið í marki Fram í seinni hálfleiknum.
40. Fram jafnaði snemma í seinni hálfleik, 13:13, en HK svaraði því með fjórum mörkum gegn einu og staðan er 17:14.
30. Hálfleikur í Digranesi og staðan 12:10 fyrir HK. þar eru Ragnar Hjaltested og Hákon Bridde með 3 mörk hvor en markaskor Framara dreifist mjög. Magnús Erlendsson í marki Fram hefur varið 11 skot og Sveinbjörn Pétursson hjá HK hefur varið 7 skot. Báðir góðir.
23. HK nýtti sér liðsmuninn þegar Fram missti tvo menn af velli í tvær mínútur og komst í 10:7. Ragnar Hjaltested er kominn með 3 mörk fyrir HK.
17. Mörkum farið að fjölga aðeins í Digranesi og allt í járnum. Staðan 5:5. Guðjón Finnur Drengsson og Hákon Stefánsson með 2 mörk hvor fyrir Fram, Sverrir Hermannsson með 2 fyrir HK.
7. Mikið um mistök á upphafsmínútunum og lítið um mörk. Staðan 1:2.
Til baka







Senda inn efni
