[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Íþróttablogg

skak.is

Skák.is | 20.3.2010
Carlsen efstur á Amber-mótinu 
Skák.is Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen náði forystunni á Amber-mótinu með 2-0 sigri á Gelfand í gær. Á meðan gerði helsti andstæðingur hans Úkraínski skákmaðurinn Ivanchuk 1-1 jafntefli við landa sinn Ponomariov. Gelfand, Grischuk og Kramnik eru í 3.-5.… Meira

Staða - Úrslit

Ísland
Önnur lönd
Heimir Ríkarðsson og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfarar Vals.

Heimir Ríkarðsson og Óskar Bjarni Óskarsson þjálfarar Vals. Kristinn Ingvarsson

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 21:09

Öruggur sigur Vals

Valur komst upp í annað sæti N1-deildar karla í handknattleik í kvöld með fimm marka sigri á Stjörnunni, 24:19, á heimavelli sínum, Vodafone-höllinni við Hlíðarenda. Valur var yfir allan leikinn ef undan eru skildar fyrstu tíu mínúturnar, m.a. fjórum mörkum í hálfleik, 14:9. Stjarnan er sem fyrr í næst neðsta sæti deildarinnar með 4 stig eftir 10 leiki.

Hlynur Mortehens átti stórleik fyrir Val, varði 20 skot. Stjörnumenn léku góða vörn en sóknarleikur liðsins var erfiður gegn framliggjandi 3/2/1 vörn Vals.

Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson 7/4, Sigurður Eggertsson 4, Orri Freyr Gíslason 4, Gunnar Ingi Jóhannsson 2, Elvar Friðriksson 2, Ingvar Árnason 2, Jón Björgvin Pétursson 2, Sigfús Páll Sigfússon 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 20/3 (þaraf 6/1 aftur til mótherja). Ingvar Guðmundsson 1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Ragnar Helgason 5/4, Vilhjálmur Halldórsson 4, Eyþór Magnússon 3, Björn Friðriksson 3, Guðmundur Guðmundsson 2/1, Daníel Einarsson 1, Sigurður Torfi Helgason 1.
Varin skot: Roland Valur Eradze 19 (þaraf 6 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.

Fylgst var með leiknum í textalýsingu sem uppfærð var jafnt og þétt meðan leikurinn stóð yfir.

50. Valsmenn eru tveimur leikmönnum færri nú um stundir en hefur eigi að síðustu lánast að skora tvisvar á meðan Stjarnan hefur aðeins skorað eitt mark. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, tekur leikhlé og talar yfir sínum mönnum sem illa hafa farið með gott tækifæri til að jafna metin.

40. Hlynur Morthens heldur upppteknum hætti í síðari hálfleik og fer á kostum í marki Vals.  Staðan 17:13, fyrir Val sem ekki hefur náð upp sama leik og á síðasta stundarfjórðungi fyrri hálfleiks.

30. Valsmenn voru með algjöra yfirburði síðasta stundarfjórðung fyrri hálfleiks. Kæruleysi kom í veg fyrir að liðið hafi meira fjögurra marka forskot, 13:9. Hlynur Morthens hefur varið vel í marki Vals, alls 11 skot, þar af þrjú vítaköst. Þá hefur Orri Freyr Gíslason verið góður hjá Val. Stjörnumenn hafa átt í mestu vandræðum með að koma skoti á mark Vals og þá sjaldan það hefur tekið hefur Hlynur verið vel á verði. Roland Eradze hefur verið góður í marki Stjörnunnar. Hann hefur varið 9 skot.
Arnór Þór Gunnarsson er markahæstur hjá Val með fjögur mörk og Orri Freyr hefur skorað þrisvar sinnum. Vilhjálmur Halldórsson er markahæstur Stjörnumanna með þrjú mörk. Björn Friðriksson hefur skorað tvö mörk.

22. Valsmenn taka nú leikhlé. Þeir eru þremur mörkum yfir, 10:7, og geta fyrst og fremst þakkað það markverði sínum Hlyni Morthens sem farið hefur á kostum. Hlynur hefur varið 9 skot, þar af tvö vítaköst.

15. Stjörnumenn byrjuðu betur og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins. Þá var sem Valsmenn vöknuðu. Varnarleikur liðsins er betri og Hlynur Morthens hefur farið á kostum í marki Vals síðustu mínútur. Valur er nú marki yfir, 5:4, og Stjörnumenn tóku leikhlé til að fara yfir stöðuna.

3. Sigurður Torfi Helgason skoraði fyrsta mark leiksins eftir snarpa sókn Stjörnumanna en áður hafði hvort lið átt tvær sóknir sem skiluðu ekki marki.

Ernir Hrafn Arnarson leikur ekki með Val í kvöld. Hann glímir við bólgur í öðru hné. Ernir stefnir á að vera með í næsta leik Vals en hann var einnig fjarri góðu gamni góðu gamni í síðustu viku þegar Valsmenn sóttu Gróttumenn heim.

Baldvin Þorsteinsson er mættur til leiks á ný með Val eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Dómarar leiksins í kvöld eru Hafsteinn Ingibergsson og Gísli H. Jóhannsson.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars